Haldinn var aðalfundur sjálfkjörinnar árshátíðarnefndar ofur saumaklúbbsins sauMA (ÁOSS) á kaffihúsinu Amokka þann 16.janúar 2008. Á þeim fundi var einróma ákveðið að haldin yrði vegleg árshátíð til að vega upp á móti fremur sjaldgæfra saumaklúbbsboða.
Val stendur nú yfir um dagsetningu árshátíðarinnar, til greina koma laugardagurinn 23. febrúar eða laugardagurinn 1. mars. Hin sjálfkjörna nefnd er svo lýðræðisleg að hún vill leyfa ykkur að kjósa um þessar tvær dagsetningar...ekki aðrar!! Vinsamlegast lýsið yfir hvor dagsetningin hentar betur. Ef þið eruð uppteknar þessa laugardaga eru þið vinsamlegast beðnar um að færa þá dagskrá á annan dag þar sem að fátt, ef eitthvað, er mikilvægara en tilvonandi árshátíð. Ef það verða forföll er viðkomandi beðinn um að skila ..í ábyrgðarpósti..læknisvottorði stimpluðu af sýslumanni.
Á áðurnefndum aðalfundi voru borin upp drög að dagskrá árshátíðar og voru þau einróma samþykkt án nokkurra mótmæla. Dagskráin er eftirfarandi;
Kl:16 mæting í heilsulind, slökun og slúður. (Staðsetning tilkynnt þegar dagsetning er komin).
Kl:19-20 matur sóttur og mæting þangað sem matur verður snæddur. (Húsnæði óskast).
Kl:21 borðhaldi lokið og skemmtidagskrá hefst. (Nefndin sér um skemmtiatriði).
Öllum spurningum og kvörtunum er beint til friður2000@internet.is
Ástarkveðjur ÁOSS.